Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018

Sturlaugur Kristjánsson Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2018.

 

Sturlaugur er Siglfirðingur og hefur starfað allan sinn feril, til fimmtíu ára, unnið óeigingjarnt starf með þátttöku sinni í tónlistarlífi bæjarins. Sturlaugur hefur unnið sem kórstjórnandi, sett upp söngskemmtanir og leikþætti, verið burðarás í sýningum Síldarminjasafnsins til margra ára og stjórnað kór eldriborgara svo lítið eitt sé nefnt.