Listamenn úr Fjallabyggð taka þátt í Vorsýningunni Vor í Listasafni Akureyrar

Mynd: Listasafnið á Akureyri
Mynd: Listasafnið á Akureyri

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar, Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir, Bergþór Morthens og Brynja Baldursdóttir, öll listamenn úr Fjallabyggð hafa verið valin til að taka þátt í vorsýningu  Listasafns Akureyrar Vor þann 18. maí nk. kl. 15.00. Sýningin stendur í allt sumar fram til 29. september og verður opin alla daga frá kl. 10:00-17:00.

Í febrúar síðastliðnum auglýsti Listasafnið á Akureyri eftir umsóknum um þátttöku í áðurnefndri sýningu og var forsenda umsóknar að myndlistarmenn búi eða starfi á Norðurlandi eða hafi tengingu við svæðið. Alls bárust yfir 100 verk og sérstaklega skipuð dómnefnd valdi verk eftir 30 listamann. Dómnefndina skipuðu þau Almar Alfreðsson vöruhönnuður, Haraldur Ingi Haraldsson myndlistarmaður, Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Rósa Kristín Júlíusdóttir kennari og myndlistarmaður og Vigdís Rún Jónsdóttir listfræðingur.

Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og á Norðurlandi og er sýningin tvíæringur og afar fjölbreytt, bæði hvað varðar aðferðir og miðla. Til sýnis verða m.a. málverk, videóverk, skúlptúrar, ljósmyndir og teikningar.

Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni ásamt þeim Hólmfríði, Brynju og Bergþóri eru: Arna Valsdóttir, Árni Jónsson, Baldvin Ringsted, Brynhildur Kristinsdóttir, Eiríkur Arnar Magnússon, Fríða Karlsdóttir, Habby Osk, Heiðdís Halla Bjarnadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Helga Sigríður Valdimarsdóttir, Jonna–Jónborg Sigurðardóttir, Joris Rademaker, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Lilý Erla Adamsdóttir, Mari Mathlin, Ragnheiður Björk Þórsdóttir, Rebekka Kühnis, Rósa Njálsdóttir, Samúel Jóhannsson, Sara Björg Bjarnadóttir, Sigríður Huld Ingvarsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Snorri Ásmundsson, Stefán Boulter, Svava Þórdís Baldvinsdóttir Júlíusson og Þórdís Alda Sigurðardóttir.

Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson.

Fjallabyggð óskar þeim Hólmfríði, Bergþóri og Brynju til hamingju og hvetur alla íbúa Fjallabyggðar til að fara og njóta sýningarinnar.