Fjölskylduleiðsögn og listamannaspjall um sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur í Listasafni Akureyrar á sunnudaginn

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir í Listasafni Akureyrar
Mynd: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir í Listasafni Akureyrar
Mynd: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir

Fjölskylduleiðsögn um sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttr

Sunnudaginn 21. október kl. 11:00-12:00 verður fjölskylduleiðsögn um sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, Hugleiðing um orku í Listasafni Akureyrar.

Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi Listasafnsins segir börnum og fullorðnum frá sýningunni. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannsins.

Þau sem eiga hamar eða önnur hentug verkfæri mega taka þau með. Aðgangur á fjölskylduleiðsögnina og listasmiðjuna er ókeypis í boði Norðurorku.

Listamannaspjall með Aðalheiði S. Eysteinsdóttur

Listamannaspjall með Öllu Siggu um sýningu hennar Hugleiðing um orku verður sama dag í Listasafni Akureyrar frá kl. 15:00-15:45. Stjórnandi er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, myndlistarkona og fræðslufulltrúi Listasafnsins.

Verkin á sýningu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur (f. 1963), Hugleiðing um orku, fjalla um næringu, náttúru, notagildi, sjálfbærni og samlyndi. Næring líkama og sálar, og tilvist í sátt við náttúruna og samfélagið, eru manneskjunni lífsnauðsynlegir þættir. Ekki aðeins til að lifa af heldur einnig til að gefa lífinu tilgang: að upplifa, elska, nærast, gagnrýna og meðtaka.

Oft fær listin fólk til að staldra við og hugsa nýja hugsun og er því tilvalinn vettvangur tilraunastarfsemi. Þar eru engin fyrirfram mótuð svör, reglur eða mælikvarði. Frelsi til sköpunar er algjört og skilningur einstaklingsbundinn.

Aðalheiður útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1993 og hefur síðan haldið yfir 150 einkasýningar í 14 löndum og tekið þátt í fjölda samsýninga. Árið 2000 var hún útnefnd bæjarlistamaður Akureyrar, sama ár og hún hóf þátttöku í Dieter Roth-akademíunni. Aðalheiður hlaut menningarverðlaun DV 2015 og tilnefningu til Eyrarrósarinnar 2017